Borgarnes
Um útibúið
Útibú Verkís í Borgarnesi var stofnað árið 1972 og er það í eigin húsnæði í stjórnsýsluhúsi að Bjarnarbraut 8.
Útibússtjóri er Einar Bjarndal Jónsson.
Í útibúi Verkís í Borgarnesi eru 3 starfsmenn, einn er byggingarverkfræðingur, annar er byggingartæknifræðingur og þriðji er tækniteiknari sem sinnir einnig almennum skrifstofustörfum.Markaðssvæði
Vesturlandsútibúið þjónar öllu Vesturlandi og hefur tekið þátt í uppbyggingu sveitarfélaga og atvinnufyrirtækja einkum í Borgarfirði, á Snæfellsnesi og Akranesi.
Útibúið veitir alla almenna verkfræðiþjónustu á sviði burðarvirkja, lagna og loftræsinga, gatnahönnunar, fráveitukerfa, ráðgjafar og verkefnastjórnunar við undirbúning framkvæmda og eftirlits með framkvæmdum.
Allir starfsmenn eru heimamenn með fjölbreytta reynslu og þekkingu.
Þjónusta
Verkís í Borgarnesi þjónar öllu Vesturlandi og hefur tekið þátt í uppbyggingu sveitarfélaga og atvinnufyrirtækja einkum í Borgarfirði, á Snæfellsnesi og Akranesi.
Helstu viðfangsefni
Helstu viðfangsefni hafa verið almenn verkfræðiþjónusta við hvers konar mannvirkjagerð fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem og einstaklinga.
Meðal helstu verka sem Verkís í Borgarnesi hefur sinnt má nefna:
- Hönnun og eftirlit með aðveitu hitaveitu frá Deildartungu og dreifikerfi hitaveitu í Borgarnesi og Hvanneyri.
- Íþróttahús og sundlaug í Borgarnesi, burðarvirki og lagnir
- Íþróttahús og sundlaug í Stykkishólmi, burðarvirki og lagnir
- Grunnskóli í Borgarnesi, lagnir og eftirlit
- Sýsluskrifstofa í Borgarnesi, hönnun lagna
- Sýsluskrifstofa í Stykkishólmi, lagnir og eftirlit
- Stjórnsýsluhús í Borgarnesi, burðarvirki og lagnir
- Íbúðir fyrir aldraða í Borgarnesi, burðarvirki, lagnir og eftirlit
- Vatnsveita fyrir Borgarnes og Borgarfjörð frá borholum í Grábrókarhrauni, hönnun lagna og eftirlit
- Vatnsveita fyrir vatnsverksmiðju í Rifi frá lindum í Fossdal við Snæfellsjökul, hönnun og umsjón
- Verkfræðihönnun ýmissa bygginga í Borgarnesi, Stykkishólmi og Snæfellsbæ.
- Hönnun gatna og veitulagna fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi.
- Eftirlit með ýmsum verkum fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi, Orkuveitu Reykjavíkur, Vegagerðina og fyrirtæki á svæðinu.
- Menntaskóli Borgarfjarðar eftirlit
