Egilsstaðir

Egilsstaðir

Um útibúið

Útibú Verkís á Egilsstöðum var stofnað árið 2003 og er það í eigin húsnæði að Kaupvangi 3b.

Útibússtjóri er Björn Sveinsson.

Í útibúi Verkís á Egilsstöðum eru 6 starfsmenn, þrír byggingartæknifræðingar, einn byggingarverkfræðingur, einn jarð- og umhverfisfræðingur og einn aðstoðarmaður.

Útibúið veitir alla almenna verkfræðiþjónustu á sviði burðarvirkja, lagna og loftræsinga, gatnahönnunar, fráveitukerfa, ráðgjafar og verkefnastjórnunar við undirbúning framkvæmda og eftirlits með framkvæmdum.

Allir starfsmenn eru heimamenn með fjölbreytta reynslu  og þekkingu.

Markaðssvæði

Verkís á Egilsstöðum þjónar einkum Austurlandi en sinnir einnig verkefnum á öðrum  markaðsvæðum.

 Helstu verkefni

Helstu viðfangsefni hafa verið almenn verkfræðiþjónusta við hvers konar mannvirkjagerð fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem og einstaklinga.

Meðal helstu verka sem Verkís á Egilsstöðum hefur sinnt má nefna:

  • Kárahnjúkar, frágangsverk og eftirlit
  • Leikskólinn Skógarland, burðarvirkja- og lagnahönnun
  • Fjarðaál Reyðarfirði, umsjón og stýring allra mælinga á byggingartíma. Ýmis viðhaldsverkefni
  • Gróðrarstöðin Barri, hönnun og verkumsjón
  • Reiðhöll Iðavöllum, hönnun og verkumsjón
  • Vegur um Hólmaháls, verkeftirlit
  • Brú yfir Rangá, verkeftirlit
  • Grímsárvirkjun, eftirlit með endurbótum á sográs
  • Þórshöfn, undirbúningur lagningar slitlags
  • Almenn verktakaþjónusta
  • Fljótsdalshérað, eftirlit með framkvæmdum í miðbæ
  • Fjarðarárvirkjun, verkeftirlit
  • Alhliða mælingaþjónusta

 

 

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica