Egilsstaðir
Um útibúið
Útibú Verkís á Egilsstöðum var stofnað árið 2003 og er það í eigin húsnæði að Kaupvangi 3b.
Útibússtjóri er Björn Sveinsson.
Í útibúi Verkís á Egilsstöðum eru 6 starfsmenn, þrír byggingartæknifræðingar, einn byggingarverkfræðingur, einn jarð- og umhverfisfræðingur og einn aðstoðarmaður.
Útibúið veitir alla almenna verkfræðiþjónustu á sviði burðarvirkja, lagna og loftræsinga, gatnahönnunar, fráveitukerfa, ráðgjafar og verkefnastjórnunar við undirbúning framkvæmda og eftirlits með framkvæmdum.
Allir starfsmenn eru heimamenn með fjölbreytta reynslu og þekkingu.
Markaðssvæði
Verkís á Egilsstöðum þjónar einkum Austurlandi en sinnir einnig verkefnum á öðrum markaðsvæðum.
Helstu verkefni
Helstu viðfangsefni hafa verið almenn verkfræðiþjónusta við hvers konar mannvirkjagerð fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem og einstaklinga.
Meðal helstu verka sem Verkís á Egilsstöðum hefur sinnt má nefna:
- Kárahnjúkar, frágangsverk og eftirlit
- Leikskólinn Skógarland, burðarvirkja- og lagnahönnun
- Fjarðaál Reyðarfirði, umsjón og stýring allra mælinga á byggingartíma. Ýmis viðhaldsverkefni
- Gróðrarstöðin Barri, hönnun og verkumsjón
- Reiðhöll Iðavöllum, hönnun og verkumsjón
- Vegur um Hólmaháls, verkeftirlit
- Brú yfir Rangá, verkeftirlit
- Grímsárvirkjun, eftirlit með endurbótum á sográs
- Þórshöfn, undirbúningur lagningar slitlags
- Almenn verktakaþjónusta
- Fljótsdalshérað, eftirlit með framkvæmdum í miðbæ
- Fjarðarárvirkjun, verkeftirlit
- Alhliða mælingaþjónusta
