Ísafjörður

Ísafjörður

Um útibúið

Útibú Verkís á Ísafirði var stofnað árið 1967 og er það í eigin húsnæði í Stjórnsýsluhúsinu að Hafnarstræti 1.

Útibússtjóri er Árni Traustason.

Í útibúi Verkís á Ísafirði eru 3 starfsmenn, einn byggingatæknifræðingur, einn byggingaverkfræðingur og einn vél- og orkutæknifræðingur.

Útibúið veitir almenna verkfræðiþjónustu á sviði burðarvirkja, lagna og loftræsinga, vega- og gatnahönnunar, fráveitukerfa, ráðgjafar og verkefnastjórnunar við undirbúning framkvæmda og eftirlits með framkvæmdum.

Allir starfsmenn eru heimamenn með fjölbreytta reynslu og þekkingu.

Markaðssvæði

Verkís á Ísafirði þjónar öllum Vestfjörðum og hefur tekið þátt í uppbyggingu sveitarfélaga, s.s. byggingu húsa, vatnsveitna, gatna og lagna og íbúðahverfa. Á árum áður kom útibúið mikið að uppbyggingu fiskvinnslustöðva bæði í Bolungavík og á Ísafirði.

Helstu viðfangsefni: 

Helstu viðfangsefni hafa verið almenn verkfræðiþjónusta við hvers konar mannvirkjagerð fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem og einstaklinga.

Meðal helstu verka sem Verkís á Ísafirði hefur sinnt má nefna:

  • Brimvarnargarður Bolungarvík, eftirlit
  • Túngata 13-15 Suðureyri, utanhússviðgerðir, hönnun og eftirlit
  • Hlíf, íbúðir aldraðra, Ísafirði, utanhússviðgerðir, hönnun og eftirlit
  • Íþróttamiðstöð Þingeyri, hönnun og eftirlit
  • Íþróttasvæði á Ísafirði, hönnun og eftirlit
  • Tækjageymsla á Þingeyrarflugvelli, hönnun, útboð og eftirlit
  • Framtíð Funa. Mat á kostum við meðhöndlun sorps í Ísafjarðarbæ
  • Hönnun vega utan ganga í Dýrafjarðar¬göngum
  • Hönnun vega utan ganga í Óshlíðargöngum
  • Nýbygging grunnskóla á Ísafirði,eftirlit
  • Fráveituútrás í Krók, Ísafirði, eftirlit
  • Endurbygging Þingeyrarflugvallar, eftirlit
  • Úttekt á möguleikum á framtíðarstaðsetningu olíubirgðastöðvar á Ísafirði
  • Nýr flugturn á Ísafirði, hönnun
  • Ísafjarðarkirkja, hönnun og eftirlit
  • Byggingarfulltrúi Súðavíkurhrepps frá 1983

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica