Selfoss

Selfoss

Um útibúið:

Útibú Verkís á Selfossi var stofnað árið 2003 og er það í eigin húsnæði að Austurvegi 10.

Útibússtjóri er Ari Guðmundsson.

Í útibúi Verkís á Selfossi eru 7 Starfsmenn, tveir byggingarverkfræðingar, tveir byggingartæknifræðingar, einn jarðfræðingur, einn vél- og orkutæknifræðingur og einn tækniteiknari.

Útibúið veitir alla almenna verkfræðiþjónustu á sviði burðarvirkja, lagna og loftræsinga, gatnahönnunar, fráveitukerfa, ráðgjafar og verkefnastjórnunar við undirbúning framkvæmda og eftirlits með framkvæmdum.

Markaðssvæði:

Verkís á Selfossi þjónar öllu Suðurlandi og hefur tekið þátt í uppbyggingu sveitarfélaga, s.s. hönnun og eftirliti bygginga, vatnsveitna, gatna og lagna.

Helstu viðfangsefni: 

Helstu viðfangsefni hafa verið almenn verkfræðiþjónusta við hvers konar mannvirkjagerð fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem og einstaklinga.

Meðal helstu verka sem Verkís á Selfossi hefur sinnt má nefna:

  • Byko Selfossi, hönnun
  • Þjónustumiðstöð Esso, Selfossi og Hveragerði, hönnun og eftirfylgni endurbóta
  • Íþróttahúsið Iða, Selfossi, eftirlit
  • Grunnskóli Bláskógarbyggðar, hönnun
  • Umferðargreining Laugarvatni, ráðgjöf og tillögur
  • Smyrlaheiði 1-44, Hveragerði, hönnun
  • Tengivirki við Sultartanga, eftirlit
  • Íþróttamannvirki Ölfusi, hönnun og eftirlit
  • Reykjavegur, frumdrög og kynningarskýrsla
  • Suðurlandsvegur 1-3, Hellu, hönnun skrifstofu og þjónustubyggingar
  • Ýmis veituverkefni, hönnun og eftirlit

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica