Umhverfis- og framkvæmdasvið
Umhverfis- og framkvæmdasvið veitir þjónustu við byggjendur hverskonar mannvirkja m.a. stærri bygginga- og jarðvinnuframkvæmda. Sviðið tekur að sér eftirlit og verkefnastjórnun framkvæmda og gerð verk- og kostnaðaráætlana mannvirkja. Sviðið veitir einnig þjónustu sem tengist samgöngum og veitum. Þar er m.a. um að ræða umferðarathuganir og spár, athuganir á hagkvæmni valkosta í samgöngum, frumhönnun og fullnaðarhönnun samgöngumannvirkja, auk ráðgjafar vegna reksturs og viðhalds slíkra mannvirkja. Sviðið veitir einnig alhliða þjónustu í umhverfismálum, svo sem gerð umhverfismats hvers konar mannvirkja og framkvæmda auk þess sem það veitir þjónustu í öryggismálum og gæðamálum fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Sviðsstjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs er Vilborg Yrsa Sigurðardóttir