Vatnsorku- og orkuflutningssvið
Undir Vatnsorku- og orkuflutningssvið heyra þrjár deildir; Háspenna og stjórnbúnaður, Vélbúnaður og Virkjanir.
Þjónusta sú sem veitt er á sviðinu tekur til flestra verkefna er varða vatnsaflsvirkjanir, allt frá frumathugun eða hagkvæmnigreiningu um tiltekinn virkjunarkost að gerð útboðsgagna um virkjunina, lokahönnun og gangsetningu. Í því felst ráðgjöf um nauðsynlegar rannsóknir á hverju stigi hönnunar, gerð verk- og kostnaðaráætlana, alhliða verkfræðihönnun og verkeftirlit, en jafnframt ráðgjöf um rekstur og viðhald mannvirkja og vélbúnaðar virkjunar.
Á sviðinu er boðin alhliða verkfræðiráðgjöf vegna orkuflutnings og -dreifingar, allt frá frumhönnun til deilihönnunar á búnaði í tengivirkjum og dreifikerfum. Þjónustan nær yfir gerð kerfisathugana, verk- og kostnaðaráætlanir, alhliða verkfræðihönnun, verkeftirlit og verkefnastjórnun auk ráðgjafar um rekstur og viðhald búnaðar og mannvirkja er tilheyra orkuflutningi og dreifingu.
Veitt er verkfræðiráðgjöf vegna annarrar umhverfisvænnar orkuvinnslu, s.s. vindorku, sjávarfallaorku og tvívökvavirkjunar. Jafnframt er boðið upp á ráðgjöf vegna varaaflsstöðva.
Þótt frumkvöðlarnir séu horfnir byggir sviðið á þeim grunni sem þeir lögðu og þeim reynslubanka sem safnað hefur verið í allt frá árinu 1932 þegar Sigurður Thoroddsen verkfræðingur stofnaði fyrstu ráðgjafarverkfræðistofu á landinu. Síðan hefur stofan verið í fararbroddi í hönnun og gerð flestra vatnsaflsvirkjana á landinu auk þess að vinna að hönnun virkjana erlendis.
Sviðsstjóri Vatnsorku- og orkuflutnings er Helgi Þór Helgason.
