Háspenna og stjórnbúnaður
Vatnsorku- og orkuflutningssvið veitir alhliða verkfræðiþjónustu og ráðgjöf um virkjanir og orkuvirki. Innan sviðsins er m.a. Háspennu- og stjórnbúnaðardeild sem er annars vegar sérhæfð í aflkerfum virkjana og tengivirkja og hins vegar í stjórnkerfum slíkra og er á deildinni séð um allt er við kemur hönnun, þ.e. forathugun, frumhönnun, verkhönnun, útboðshönnun og deilihönnun. Jafnframt er innan deildarinnar viðamikil reynsla í prófunum og gangsetningu viðkomandi búnaðar.
Deildin hefur á að skipa mannskap með reynslu í:
- að hanna allan búnað sem þarf til að framleiða rafmagn með rafölum, koma því upp á hærri spennu og dreifa á háspennulínur
- að hanna allan búnað sem þarf til að taka við rafmagni frá línum, lækka á því spennuna og dreifa til notanda
- að hanna stjórnbúnað og varnarbúnað fyrir virkjanir og tengivirki
- að hanna varaaflstöðvar
- að hanna afl og stjórnbúnað í stóriðjuver
- að hanna afl og stjórnbúnað í lyfjaverksmiðjur
- að framkvæma mælingar í raforkukerfinu og truflanagreiningu á mæligögnum
- að forrita stjórnkerfi, prófa þau og gangsetja
- að framkvæma prófanir á liðaverndarbúnaði
Starfsmenn deildarinnar leitast við að vera fremstir á sínu sviði og tileinka sér allar helstu nýjungar á markaðnum á hverjum tíma.
Deildarstjóri Háspennu og stjórnbúnaðardeildar er Jón Pálmason.
