Vélbúnaður

Vélbúnaður

 

Vatnsorku- og orkuflutningssvið veitir alhliða verkfræðiþjónustu og ráðgjöf um virkjanir og orkuvirki. Vélbúnaður er ein af þremur deildum sviðsins.

Viðfangsefni vélbúnaðardeildar ná yfir flest það sem snýr að vélbúnaði og stálvirkjum. Stærstu verkefnin lúta að virkjun vatnsafls og er aðkoma starfsliðs deildarinnar á öllum stigum hönnunar, allt frá forathugun, frumhönnun, verkhönnun, útboðshönnun til lokahönnunar.

Á deildinni er boðin verkfræðiráðgjöf við hönnun, útfærslu og val á hverflum, hjálparkerfum, þrýstipípum og lokubúnaði. Jafnframt er boðin ahliða ráðgjöf við gerð lagna- og loftræsikerfa, val á varavélum og lyftkrönum og hönnun stálvirkja.

Þegar að framkvæmdum, rekstri og viðhaldi kemur þá hefur deildin á að skipa verk- og tæknifræðingum með reynslu af uppsetningum og prófunum, rekstri virkjana og eftirliti með stálsmíði.

Fjölbreytt starfssemi deildarinnar er ekki einungis bundin við vatnsaflsvirkjanir, önnur verkefni eru hönnun, útfærsla, eftirlit og/eða ráðgjöf við val er tengist t.d.

  • hvers kyns stálvirkjum
  • skólpdælustöðvum fyrir sveitarfélög
  • snjóflóðastoðvirkjum
  • smíði listaverka
  • dælustöðvum
  • háspennumöstrum
  • varaflsstöðvum
  • kælikerfum
  • snjóbræðslukerfum

Vélbúnaðardeild hefur á að skipa hópi vélaverkfræðinga, véltæknifræðinga og eðlisfræðingi með breiðan þekkingargrunn sem vinnur í nánu samstarfi við aðrar deildir Verkíss, s.s. Háspennu- og stjórnbúnaðardeild og Virkjanadeild. Auk virkjunar vatnsafls þá er hópurinn vel búinn undir að takast á við fjölbreytt verkefni nútíðar og framtíðar, t.d.

  • álagsgreiningar
  • líkangerðvirkjun vindorku
  • vélbúnað sjávarfallavirkjana
  • vetnisrafala
  • virkjun lífrænnar orku

 

Deildarstjóri Vélbúnaðardeildar er Þorvaldur P. Guðmundsson.

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica