Virkjanir

Virkjanir

 

Vatnsorku- og orkuflutningssvið veitir alhliða verkfræðiþjónustu og ráðgjöf um virkjanir og orkuvirki. Virkjanir eru ein af þremur deildum sviðsins. Virkjanadeild er sem slík sérhæfð í flestu er lýtur að vatnsaflsvirkjunum og hefur starfslið deildarinnar unnið að hönnun og eftirliti með virkjanaframkvæmdum víða um heim austan hafs og vestan. Undirbúningi virkjunar er þá gjarnan skipt í fimm stig; forathugun, frumhönnun, verkhönnun, útboðshönnun og lokahönnun. Mismunandi nákvæmar efnisrannsóknir og forsendur svo sem um jarðfræði, vatnafar, flóð og straumfræði, liggja að baki hverju hönnunarstigi, en öllum fylgir kostnaðaráætlun sem endurspeglar nákvæmni upplýsinga sem byggt er á hverju sinni og fela þannig í sér mismikla óvissu. Þá tekur þjónusta sú sem veitt er á deildinni til ráðgjafar um nauðsynlegar rannsóknir bæði á mismunandi hönnunarstigum og á framkvæmda­tíma virkjunar. Jafnframt sinna starfsmenn deildarinnar eftirliti við virkjanir og þar með gerð viðkomandi áætlana s.s. um rekstur, viðhald og endurbætur viðkomandi mannvirkja.

Það lætur að líkum að  flestir þættir í hönnun vatnsaflsvirkjana hafi breyst í tímans rás. Starfslið deildarinnar hefur þar verið í fararbroddi um margt og þá jafnan í góðri samvinnu við tæknilið viðkomandi verkkaupa til að lágmarka áhættu við framkvæmdir og tryggja sem best öryggi í rekstri, samhliða því að leita ávallt hagkvæmustu lausna.

Starfsmenn virkjanadeildar hafa m.a. þróað nýja aðferð við mat á hrýfi í boruðum göngum sem hefur vakið athygli víða um heim, þeir hafa verið leiðandi í gerð og þróun líkana fyrir vatnsaflsvirkjanir á Íslandi, má þar telja kostnaðarlíkan, orkulíkan, flóðalíkan, sjávarfallalíkan og líkan af straumum og orkugetu í Breiðafirði.

Á Virkjanadeild eru verkfræðingar sérhæfðir m.a. á sviði bergfræði, burðarþols, jarðtækni, straumfræði, sjávarfalla, snjóflóða og vatnafræði svo nokkur svið séu nefnd. Starfsmenn deildarinnar vinna í nánu samstarfi við sérfræðinga á öðrum deildum verkfræðistofunnar, s.s. í umhverfismálum.

 

Deildarstjóri Virkjanadeildar er Ægir Jóhannsson.

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica