05/01/2018

Verkís leitar að fagstjóra brunahönnunar

Verkís forsíðumynd
Verkís leitar að fagstjóra brunahönnunar

Við erum að leita að reyndum brunahönnuði til að vera í forsvari fyrir ráðgjöf Verkís um brunahönnun og brunavarnir ásamt því að leiða brunahönnunarteymi okkar. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling.

Hlutverk og ábyrgð

  • Vera í forsvari fyrir ráðgjöf Verkís í verkefnum á sviði brunahönnunar og brunavarna
  • Faglegur leiðtogi brunahönnunarteymis Verkís
  • Þátttaka í verkefnaöflun og tilboðsgerð vegna brunahönnunar og brunavarna
  • Áætlanagerð og skipulagning verkefnavinnu í samvinnu við stjórnendur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meistarapróf í verkfræði með áherslu á brunahönnun
  • Mikil reynsla af brunahönnun
  • Ítarleg þekking á lögum og reglum sem gilda um brunavarnir mannvirkja
  • Góðir stjórnunar- og skipulagshæfileikar
  • Reynsla af notkun brunalíkana, t.d. FDS
  • Reynsla af notkun teikniforrita, t.d. AutoCAD og Revit
  • Gott vald á íslensku og ensku, þekking á Norðurlandamáli er kostur

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um á ráðningarvef Verkís í síðasta lagi 22. janúar n.k.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar veitir Elín Greta Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, egs@verkis.is

Verkís forsíðumynd
Verkís leitar að fagstjóra brunahönnunar