Brunahönnun

Brunahönnun

 Brunatæknileg hönnun er ung og vaxandi grein innan verkfræðinnar þar sem þekking og möguleikar á nýjum lausnum aukast hratt. Verkís býður viðskiptavinum sínum upp á víðtæka ráðgjöf varðandi öryggi gagnvart bruna.

Eftir því sem byggingar og önnur mannvirki verða stærri og flóknari, eykst þörfin á sérfræðiþekkingu til að unnt sé að tryggja brunaöryggi á sem bestan og hagkvæmastan hátt. Einnig eykst þörfin á samvinnu milli hönnuða hinna ýmsu húskerfa sem snerta brunavarnir.

Við hjá Verkís getum boðið upp á margvíslega þjónustu varðandi brunatæknilega hönnun. Hjá okkur eru að auki færir sérfræðingar á sviðum sem tengjast brunavörnum, svo sem hönnuðir burðarvirkja, brunaviðvörunarkerfa, neyðarlýsingar, vatnsúðakerfa, reykræsingar og loftræsingar. Þetta þýðir að við getum boðið heildarlausnir og tryggt að öll kerfin vinni saman eins og til er ætlast.

Þjónusta sem Verkís býður upp á í brunamálum er meðal annars:

  • Brunatæknileg hönnun bygginga
  • Úttektir og hönnun endurbóta á eldri byggingum ásamt kostnaðar- og verkáætlunum
  • Áhættugreiningar
  • Rýmingar- og viðbragðsáætlanir við bruna
  • Straumfræðileg líkön af þróun bruna ásamt reyk- og hitamyndun
  • Brunavarnaáætlanir

 

Aðra þjónustu varðandi brunavarnir er að finna hér.

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica