Hljóðvist

Hljóðvist

Hljóð er mikilvægur þáttur í umhverfi okkar. Það getur virkað sem öryggistæki, t.d. varað okkur við hættum í umferðinni , það er notað til samskipta og það getur einnig veitt okkur ánægju s.s. í gegnum skemmtilega tónlist. Hljóð í umhverfi okkar hafa einnig mikil áhrif á það hvernig við upplifum þann stað sem við erum á hverju sinni. Þannig geta rými með illa hannaða hljóðvist valdið vanlíðan þeirra sem þar dvelja.

Hljóðvistarteymi Verkíss býður upp fjölþætta þjónustu við arkitekta, fyrirtæki og einstaklinga.

Þjónusta sem Verkís býður upp á á sviði hljóðtækni er meðal annars:

  • Hljómburðarhönnun
  • Hönnun, ráðgjöf og umsjón með úboðum á hljóðkerfum
  • Ráðgjöf með hávaðadreyfingu í iðnaðarsölum
  • Gerð hávaðkorta innan,- og utanhúss
  • Hljóðeinangrun
  • Almenn hljóðvistarhönnun stærri bygginga
  • Hermun umferðarhávaða
  • Iðnaðarhávaði
  • Mælingar

Starfsmenn Verkíss hafa geysimikla og víðtæka reynslu af hljóðvistarhönnun. Þeir eru virkir í alþjóðlegu samstarfi hljóðverkfræðinga og eru meðlimir félögum á borð við European Acoustic Association, Acoustical Society of America, Audio Engineering Society og fleiri félögum.

Óháð ráðgjöf um hljóðkerfi

Það er mikilvægt fyrir framkvæmdaraðila að fá óháða ráðgjöf til að tryggja sem mesta hagkvæmni.  Út frá þarfagreiningu má skilgreina nauðsynlegan búnað sem hentar í hverju verki óháð öðrum hagsmunum.  Hljóðmælingar samhliða útekt við verlok tryggja gæði hljóðkerfis.

Hermun umferðarhávaða

Við mat á umferðarhávaða eru ýmist gerðar beinar mælingar, eða hávaðinn er reiknaður út í tölvulíkani. Reikniforrit eins og Sound Plan geta reiknað hljóðstig vegna umferðar með mikilli nákvæmni. Þannig má spá fyrir um hávaða frá vegum sem fyrirhugað er að leggja eða breyta, og jafnframt má prófa mismunandi mótvægisaðgerðir á hönnunarstigi. Ennfremur má reikna út hljóðstig frá umferð í íbúðarhverfum út frá umferðarhraða, fjölda bíla og fjarlægð frá vegi.

Hermun hljómburðar og hljóðvistar

Flest rými, þar sem hanna skal hljóðvist sérstaklega, eru sett upp í reiknilíkan.  Gildir þá einu hvort rýmið sem um er að ræða verði notað sem tónleikasalur, matsalur, íþróttahús eða kennslustofa.  Með reiknilíkani er hægt að herma hljóðvist og hljómburð líkt sem um raunverulega mælingu væri að ræða.

Sérhæfð verkfæri

Starfsumhverfi hljóðverkfræðinga hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með tilkomu öflugra  mælitækja og tölvuforrita.  Verkís er vel búið slíkum tækjum og má þar nefna:

  • Mælitæki og hugbúnað frá Norsonic til mælinga á hávaða.
  • Hljóðreikniforritið CATT-Acoustic er notað til að herma hljóðvist og hljómburð rýma.
  • Með hugbúnaði frá SoundPlan er hægt að reikna umhverfis,- og umferðarhávaða
  • Til greiningar á hávaða og hljómburði nota starfsmenn Verkís sérhæfðan hugbúnað sem hentar hverju sinni, s.s. WinMLS, NoiseLab og Matlab.

Dæmi um verkefni

Dæmi um hljóðtækniverkefni sem hafa verið unnin á Verkís:

  • Hljóðvist, hljómburður og hljóðeinangrun

    • Hof (Akureyri), Hljómahöllin (Reykjanesbæ), Salurinn í Kópavogi o.fl.
    • Leikhús: Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið (endurbygging), Tjarnarbíó o.fl.
    • Fyrirlestrarsalir: Háskólatorg HÍ, Höfuðstöðvar Arion Banka
    • Krikaskóli, Lækjarskóli í Hafnarfirði, Sjálandsskóli, Gerðaskóli o.fl.
    • Tónlistarsk. Hafnarfj., Tónlistarsk. Kópavogs. o.fl
    • Íþróttahús: Egilshöll, Frjálsíþrótta,- og sýningarhöll í Laugardal, Frjálsíþróttahús Kaplakrika o. fl.
    • Bíó: Smárabíó, Egilshöll

    Hljóðkerfi

    • Háskólinn í Reykjavík
    • Borgarleikhúsið
    • Höfðatorg, skrifstofur Reyakjvíkurborgar
    • Hellisheiðarvirkjun
    • Gerðaskóli
    • Arion banki

    Hávaði

  • Umhverfishávaði við Fjarðaál
  • Hljóðmanir, m.a. við Reykjanesbraut og Hallsveg í Reykjavík
  • Alcan á Íslandi og Elkem Ísland

 

PDF Útgáfa



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica