Hönnun fjarskiptakerfa

Fjarskiptakerfi

Nútímaleg fjarskipti eru orðin býsna flókin. Við lítum á það sem sjálfsagðan hlut að geta lyft upp símtólinu og náð í þá manneskju sem við þurfum að hafa samskipti við eða notað farsímann þegar okkur hentar. Til að allt þetta sé mögulegt þarf fjarskiptakerfið að vera þannig úr garði gert að viðbætur og breytingar séu einfaldar og aðgengilegar og rekstraröryggi kerfisins þarf að vera gott. Kröfur nútímans er að allir geti verið í stöðugum samskiptum við viðskiptavini, vinnufélaga og fjölskylduna þegar okkur hentar og nauðsyn krefur. Fjarskiptakerfið er megin stoð þessara sjálfsögðu krafna. Reynslan sýnir að ef vandað er til við forsendugerð og hönnun ásamt því að tryggt sé að rekstraröryggi fjarskiptakerfa sé sem best eru minni líkur á að þessi mikilvægi þáttur í okkar daglega lífi gefi sig þegar á reynir og að ekki sé minnst á mikilvægi fjarskipta í neyðarástandi.

 Því er mikilvægt að taka tillit til allra þátta við hönnun fjarskipta og til að ná fram hagkvæmustu og öruggustu lausninni fyrir fyrirtækið, starfsmenn og aðra notendur fjarskiptakerfisins.

 Þjónusta

Verkís býður meðal annars eftirfarandi þjónustu á sviði fjarskiptakerfa:

  •         hönnun staðarneta
  •         hönnun víðneta
  •         hönnun símakerfa, þar með talið val á símkerfum
  •         hönnun dreifikerfa (fastlínukerfi, farsímakerfi og talstöðvakerfi)
  •         hönnun loftnetskerfa (sjónvarpssendingar o.fl.)
  •         hönnun loftnetskerfa fyrir þráðlaus samskipti (GSM/TETRA)
  •         útboðsgerð, mat tilboða og verkeftirlit

 Reynsla

Verkís hefur áralanga og víðtæka reynslu varðandi ráðgjöf og hönnun fjarskiptakerfa.   Viðskiptamannahópurinn er stór og breiður. Umfang verkefna hefur verið allt frá hönnun fjarskiptakerfa fyrir heimili upp í allar stærðir fyrirtækja, svo sem sjúkrahús, orkumannvirki, skóla-, verslunar-, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæðis. Fyrirtækið hefur á að skipa sérfræðingum sem hafa sérhæft sig í hönnun fjarskiptakerfa og almennri ráðgjöf í fjarskiptamálum. Fyrirtækið leggur áherslu á endur- og símenntun starfsmanna og að þeir fylgist vel með nýjungum á sínu sviði, bæði hérlendis og erlendis.

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica