Hönnun rafkerfa

Hönnun rafkerfa

 Gott skipulag rafkerfa skiptir miklu máli í allri mannvirkjagerð. Hvort sem um er að ræða skrifstofubyggingu, iðnaðarhúsnæði eða heimili þurfa raflagnir og rafkerfi að vera sniðinn eftir þörfum á hverjum stað. Rafkerfi skipta okkur öll máli og því er mikilvægt að vanda vel til alls undirbúnings þegar raflagnahönnun er annars vegar.

Verkís býður viðskiptavinum þjónustu á sviði raflagnahönnunnar og greiningar rafkerfa fyrir allar gerðir bygginga.  Fyrirtækið leggur metnað í að veita faglega þjónustu með hámarks hagkvæmni viðskiptavinarins að leiðarljósi.  Okkar styrkur er að veita heildarlausn á allri raflagnahönnun sem tengir framlagðar lausnir við aðra hönnunarþætti byggingarinnar.

Þjónusta

Verkís býður eftirfarandi þjónustu við almenna hönnun rafkerfa:

  •          hönnun lagnaleiða (stigar, pípur, dósir ofl.)
  •          hönnun jarð- og sökkulskauta, auk eldingarvarna
  •          hönnun lágspennukerfa (400/230V)
  •          hönnun aðaldreifingar (aðaldreifiskápar, skammhlaupsútreikningar ofl.)
  •          hönnun fjarskiptakerfa (tölvu- og símalagnir, loftnetskerfi, hljóð- og sýningarkerfi ofl.)
  •          hönnun öryggiskerfa (brunaviðvörunar-, slökkvi-, innbrotsviðvörunar-, aðgangsstýri- og myndeftirlitskerfa, sjúkrakallskerfa ofl.) auk öryggistæknilegrar hönnunar

 

Reynsla

Verkís hefur áralanga og víðtæka reynslu varðandi hönnun rafkerfa, almenna raflagnahönnun og ráðgjöf varðandi rafkerfi.  Viðskiptamannahópurinn er stór og breiður og umfang verkefna hefur verið allt frá hönnun rafkerfa í heimilum og upp í allar stærðir fyrirtækja eins og sjúkrahús, orkumannvirki, skóla-, verslunar-, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði. Fyrirtækið hefur á að skipa sérfræðingum sem hafa sérhæft sig í hönnun rafkerfa, hver á sínu sviði, og leggur fyrirtækið áherslu á endurmenntun starfsmanna og þeir fylgist vel með nýjungum á sínu sviði, bæði hérlendis og erlendis.

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica