Öryggiskerfi

Öryggiskerfi

 Öryggismál skipta okkur öll máli. Ástand öryggismála í byggingum er mikilvægur þáttur í að tryggja öryggi þeirra sem í byggingunni eru, hvort sem það er á heimilum okkar eða á vinnustaðnum. Öryggismál hafa einnig bein áhrif á rekstraröryggi fyrirtækja og eru vaxandi þáttur í daglegu lífi okkar því öll viljum við skapa fjölskyldunni og samstarfsstarfsfólki öruggt umhverfi. Við viljum verja okkar heimili og vera örugg í vinnunni, verja okkar eignir gegn bruna, innbroti, árás eða vatnstjóni svo eitthvað sé nefnt.

 Stjórnendur fyrirtækja eru vel meðvitaðir um að besta lausnin til að skapa rekstraröryggi eru forvarnir gegn áföllum eins og rekstrarstöðvun. Ef öryggismálin eru ekki í lagi er mikil hætta á ferðum. Því er nauðsynlegt að hönnun öryggiskerfa og gerð viðbragðs- og neyðaráætlana taki mið af aðstæðum á hverjum stað og sé útfært með þeim hætti að öryggi starfsmanna og gesta sé ávalt haft í fyrirrúmi.

 Mikilvægt er að taka tillit til allra þátta öryggismála, strax á undirbúningsstigi framkvæmda, til að ná fram hagkvæmri og góðri lausn fyrir fyrirtækið, starfsmenn og aðra notendur byggingarinnar.

 

Þjónusta

Verkís býður eftirfarandi þjónustu á sviði öryggiskerfa:

  •          hönnun brunaviðvörunarkerfa
  •          brunatæknileg hönnun bygginga
  •          hönnun öryggiskerfa (aðgangsstýring, innbrotaviðvörun, vaktkerfi o.fl.)
  •          hönnun sjúkrakallkerfa
  •          hönnun myndeftirlitskerfa
  •          hönnun slökkvikerfa
  •          úttekt á öryggismálum
  •          áhættustjórnun (áhættugreining og áhættumat)
  •          útboðsgerð, mat tilboða og verkeftirlit

 

Reynsla

Verkís hefur áralanga og víðtæka reynslu varðandi ráðgjöf í öryggismálum og hönnun öryggiskerfa. Viðskiptamannahópurinn er stór og breiður og umfang verkefna hefur verið allt frá hönnun öryggiskerfa fyrir heimili og upp í allar stærðir fyrirtækja eins og sjúkrahús, orkumannvirki, skóla-, verslunar-, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæðis. Fyrirtækið hefur á að skipa sérfræðingum sem hafa sérhæft sig í hönnun öryggiskerfa og ráðgjöf í öryggismálum og leggur fyrirtækið áherslu á endurmenntun starfsmanna og að þeir fylgist vel með nýjungum á sínu sviði, bæði hérlendis og erlendis.



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica