Stjórnkerfi og sjálfvirkni

Stjórnkerfi & sjálfvirkni

Áhættugreining

Áður en stjórnkerfi er hannað er nauðsynlegt að fram fari áhættugreining. Mikilvægt er að gera sér grein fyrri öllu sem getur farið úrskeiðis og hverjar afleiðingarnar geta orðið. Nauðsynlegt er að þekkja meðal líftíma tækja svo hægt sé að tryggja öryggi með því að nota tvöfalt kerfi, þ.e svokallað umfremdar kerfi (redundant). Nauðsynlegt er að þekkja aðferðafræðina vel, því stundum geta aðgerðir sem ætlað er að tryggja öryggi haft öfug áhrif. Starfsmenn Verkís hafa víðtæka reynslu af áhættugreiningu í t.d. jarðvarmavirkjunum þar sem ekkert má fara úrskeiðis vegna hættu á t.d. gufusprengingum.

Iðntölvur

Verkís hefur mjög mikla reynslu í notkun iðntölva í iðnaði og orkuverum. Sem dæmi má nefna að starfsmenn Verkís hafa hannað og forritað iðntölvukerfi allra orkuveranna í Svartsengi og á Reykjanesi, Kröfluvirkjun, og Binary virkjunum á Húsavík og í El Salvador. Þar er notuð nýjasta tækni með umfremdar (redundant) búnaði og fjarskiptaleiðum til að tryggja hámarks öryggi. Iðntölvunet Hitaveitu Suðurnesja nær yfir allan Reykjanesskagann og eru tengdar iðntölvur jafnvel í Hafnarfirði, í Múlavirkjun á Snæfellsnesi og í Vestmannaeyjum. Kerfið er samtengt með ljósleiðurum, IP-netum, hefðbundnum strengjum og radíóhlekkjum. Í lyfjaiðnaðinum hafa verið hönnuð umfangsmikil stjórnkerfi fyrir hágæða lofthreinsikerfi og víða í steinefnaiðnaðinum eru vogarstýrikerfi sem eru hönnuð og forrituð af Verkís. Einnig eru iðntölvur sem Verkís hefur forritað eða þjónað víða í stærri og smærri iðnfyrirtækjum.

Sjálfvirkni

Hjá Verkís er boðið upp á þjónustu á öllum stigum sjálfvirkni, allt frá einföldum kerfum að flóknum þjarkakerfum. Boðið er upp á þarfagreiningu, forhönnun, kostnaðarmat, deilihönnun, forritun og heildarlausnir. Sérfræðingar Verkís hafa um áratugaskeið hannað allan stjórnbúnað fjölmargra virkjana hér á landi þar sem gerðar eru miklar kröfur til öryggis og áreiðanleika.

Stjórnkerfi

Hjá Verkís er boðið upp á víðtæka þjónustu í tengslum við stjórnkerfi. Um er að ræða allt frá einföldum kerfum til flókinna kerfa með iðntölvum og skjágæslukerfum. Hjá Verkís starfa sérfræðingar með áratuga reynslu í forritun iðntölva og skjágæslukerfa. Starfsmenn Verkís hafa hannað stjórnkerfi fjölmargra virkjana og iðnfyrirtækja.

Skjágæslukerfi

Skjágæslukerfi (SCADA) eru nauðsynleg í öllum stærri stjórnkerfum. Starfsmenn Verkís hafa sett upp slík kerfi, bæði lítil og stór.

Lítil kerfi eru aðeins ein vinnustöð sem tengist einni iðntölvu, eða jafnvel bara flatskjár í hurð töfluskáps.

Sem dæmi um stórt kerfi má nefna:

  • Kerfisráð Hitaveitu Suðurnesja sem fylgist með 12 hverfilsamstæðum í öllum orkuverunum, gufuöflun, dreifikerfi rafmagns og dreifikerfi heits og kalds vatns. Samtals er fylgst með yfir 20.000 mælipunktum. Vinnustöðvar eru 30 talsins, safnaratölvur 15 og tengdar útstöðvar um 60. Fjöldi skjámynda skiptir hundruðum.
  • Kerfisráð hjá Actavis í lyfjaverksmiðjum í Hafnarfirði og Möltu
  • Kerfisráð í virkjunum Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur, Orkuveitu Húsavíkur og í El Salvador

Starfsmenn Verkís hafa skrifað viðbótar hugbúnað í skjágæslukerfi fyrir sérlausnir. Sem dæmi má nefna samskiptarekil og atvikaskráningu fyrir liðaverndarkerfi rafdreifikerfa.

Þjarkar

Þjarkar eða róbótar eru notaðir í iðnaði til að vinna einhæf störf. Þar er verið að endurtaka sömu handtökin aftur og aftur og því hægt að ná mun meiri skilvirkni, sparnaði og jafnari framleiðslu með því að nota þjarka. Verkís hefur hannað þjarkakerfi fyrir t.d. hellusteypur.

 

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica