Fjarskipti og netkerfi

Fjarskipti og netkerfi

 Fjarskipti

 Hjá Verkís starfa sérfræðingar með áratuga reynslu í fjarskiptakerfum, allt frá litlum kerfum fyrir iðnaðinn til stórra kerfa eins og víðfeðms borgarnets. Fjarskipti með radíóhlekkjum, ljósleiðurum og hefðbundnum kopar eru okkar fag, svo og tölvunetkerfi af öllum gerðum.

Ljósleiðarar

Ljósleiðarar eru mest notaða fjarskiptaleiðin í dag, enda bandbreidd nánast ótakmörkuð. Auðvelt er að ná miklu meiri samskiptahraða en með öðrum aðferðum.

Starfsmenn Verkís hafa mjög mikla reynslu í notkun ljósleiðara til að tengja saman tölvukerfi í iðnaði og orkuverum. Þar eru oft notaðir tvöfaldir ljósleiðarahringir með tvöföldum aðgangsleggjum til að tryggja öryggi.

Starfsmenn Verkís eru aðalhönnuðir Borgarnets Gagnaveitu Reykjavíkur og hafa einnig séð um stóran hluta deilihönnunar.Í grunnnetinu eru samtals um 350 km 96-leiðara strengir og yfir 70 km í aðgangsleggjum að sjúkrahúsum, skólum og rannsóknastofnunum. Dreifistöðvar (spennistöðvar) Orkuveitu Reykjavíkur, sem mynda hnútapunkta í grunnnetinu, eru um 350 talsins. Auk þess liggur strengur alla leið til Vestmannaeyja og til Akraness. Einnig er um að ræða tengingu ljósleiðara alla leið inn á fjölmörg heimili (Fiber to Home).

Radíóhlekkir

Stundum hentar betur að nota radíóhlekki en aðrar fjarskiptaleiðir. Í iðntölvunetum hentar stundum vel að nota svokölluð radíómótöld, en örbylgjuhlekki fyrir hraðvirkari tölvusambönd.

Starfsmenn Verkís hafa mjög mikla reynslu í að nýta radíótækni fyrir merkjaflutning. Sem dæmi má nefna víðfeðmt iðntölvunet sem samtengt er með Profibus samskiptastaðlinum og radíómótöldum. Endurvarpi á fjalli sér til þess að beina merkjum langar vegalengdir milli staða þar sem sjónlína er ekki fyrir hendi. Oft hentar vel að brúa ákveðna hlekki með þráðlausum samskiptum, þó svo að ljósleiðarar séu notaðir að jafnaði.

GPRS, SMS, WWW

Í sumum tilvikum hentar vel að notfæra sér GSM netið til merkjaflutninga. Starfsmenn VERKÍS hafa t.d. notað GPRS fyrir færanlega vinnustöð fyrir skjágæslukerfi (SCADA), og SMS til að flytja boð með mælimerkjum og viðvörunum. Einnig hafa þeir notað veraldarvefinn til að tengja skjágæslukerfi milli landa


 



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica