Mælitækni og sérlausnir

Mælitækni og sérlausnir

Mælitækni

Í hartnær hálfa öld hefur Verkís komið að hönnun og notkun mælitækja fyrir jarðvísindi, iðnað og orkuver. Auk hefðbundins mælibúnaðar hefur Verkís sérhannað búnað þegar aðrar lausnir hafa ekki verið fyrir hendi. Sem dæmi um nýlegar sérlausnir má nefna búnað fyrir rauntímagreiningu á stöðugleika skipa og búnað til að finna sjálfvirkt bogin og sprungin rafskaut í kerjum álvera með mjög næmri viðnámsmælingu.

Í árdaga stóriðjunnar í byrjun sjöunda áratugarins var mikil áhersla lögð á jarðvísindi til þess m.a að staðsetja jarðvarmann í iðrum jarðar. Þar lögðu starfsmenn Verkís drjúga hönd á plóginn. Þessu starfi var haldið áfram við hönnun flestra virkjana sem reistar hafa verið á Íslandi frá miðbiki tuttugustu aldar og einnig í þeim stóriðjuverum sem reist hafa verið bæði hérlendis og erlendis.  Þessi saga hefur verið óslitin frá því virkjun Kröflu hófst og þangað til síðustu vélasamstæður í Reykjanesvirkjun og Hellisheiðarvirkjun voru gangsettar.

Örtölvur

Verkís hefur í þrjá áratugi þróað hugbúnað fyrir örtölvur. Má sem dæmi nefna staðstýribox fyrir álver, hitarita, álagsstýrikerfi og stöðugleikavakt fyrir skip og andveltitanka. Verkís hefur yfir að ráða þróunarkerfi og þekkingu til að forrita í helstu forritunarmálum eins og C++.   Einnig hugbúnaði fyrir prentrásagerð.

Skipatækni

Verkís hefur hannað búnað til að mæla öldurót í líkönum hafnarmannvirkja, til að mæla stöðugleika skipa í rauntíma, og búnað til að stjórna andveltitönkum í skipum til að gefa þeim verulega aukinn stöðugleika.

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica