Fjarskipti og upplýsingakerfi
Í nútímasamfélagi eru fjarskipti lykilatriði. Án þeirra gæti starfssemi ekki þrifist í þem mæli sem krafist er. Sjálfvirkni, stjórn- og eftirlitskerfi eru nauðsynleg svo sem í orkuverum, iðnaði, heilbrigðisgeiranum, sjávarútveginum, o.s.frv. Mælitæknin er oft nauðsynleg sem fyrsta skref í sjálfvirkri öflun upplýsinga. Hugbúnaður vinnur úr upplýsingum og gerir þær aðgengilegar. Í tölvuverum og netþjónabúum eru upplýsingar varðveittar um ókomin ár. Allt eru þetta skyld svið sem sífellt meiri kröfur eru gerð til. VERKÍS hefur sinnt þessum sviðum í hartnær hálfa öld og tekið þátt í hönnun flókinna rafeindatækja, þróun hugbúnaðar fyrir örtölvur, iðntölvur og einmenningstölvur, ráðgjöf og hönnun mælikerfa, hönnun og ráðgjöf varðandi upplýsingakerfi, stór ljósleiðarakerfa í borgarnetum, ljósleiðarakerfi í iðnaði og orkuverum, þráðlaus fjarskiptakerfi, tölvunet, svo oghönnun og ráðgjöf varðandi tölvuver í t.d. sjúkrahúsum og ýmsum stofnunum, og stór alþjóðleg netþjónabú.
Helstu flokkar á sviði fjarskipta og upplýsingakerfa sem má sjá hér til hliðar.
Lykilverkefni:
Vikrjanir Hitaveitu Suðurnesja,virkjanir Landsvirkjunar og virkjanir Orkuveitur Reykjavíkur, virkjun Orkuveitu Húsavíkur, virkjun í El Salvador. Stjórnbúnaður hjá Actavis
