Ýmislegt

Ýmislegt

 Umferðarstjórn

Í sívaxandi mæli er farið að tengja umferðarljós við tölvumiðstöð sem stjórnar velflestum umferðarljórum borganna. Í tölvumiðstöðinni er umferðagreinir sem tekur við merkjum frá umferðateljurum og reiknar út hagkvæmustu umferðarstýringu. Boð eru send til allra helstu umferðarljósa til að tryggja að umferð gangi eins greiðlega og hægt er. Verkís hefur hannað ljósleiðarkerfi sem tengir umferðarljós Reykjavíkur og umferðarteljara við miðlæga tölvumiðstöð þar sem stjórnun fer fram í hermilíkani sem reiknar út besta umferðarflæðið og stýrir ljósunum á hagkvæman hátt.

Varaaflgjafar

Í tölvuverum margra fyrirtækja, bankastofnana, rannsóknarstofa, menntastofnana o.s.frv. eru gerðar miklar kröfur um öryggi í varðveislu gagna og um að aðgengi sé tryggt. Starfsmenn VERKÍS hafa mikla reynslu í ráðgjöf og hönnun slíkra kerfa.

Sjávarútvegurinn

 Verkís hefur hannað síritandi fjölrása hitarita fyrir fiskiskip og frystihús, vottaðan búnað sem er í notkun víða hér á landi og erlendis. Verkís hefur hannað búnað til að mæla öldurót í líkönum hafnarmannvirkja, til að mæla stöðugleika skipa í rauntíma, og búnað til að stjórna andveltitönkum í skipum til að gefa þeim verulega aukinn stöðugleika.

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica