Iðnaður
Idnadur

Iðnaður

Iðnaður er hverju þjóðfélagi mikilvægur. Það skiptir máli að iðnfyrirtæki séu rekin á sem hagkvæman hátt og að gæði afurðanna séu miklar.

Verkís hefur langa reynslu í ráðgjöf og hönnun fyrir iðnfyrirtæki, allt frá hönnun iðnaðarhúsa til hönnunar á stjórnkerfum fyrir iðnferla.

Hönnun og bygging á iðnaðarhúsnæði getur verið mjög flókin og þarf þar að gæta að þörfum hvers og eins. Verkís hefur langa reynslu í verkefnastjórn og verkeftirliti við byggingu á iðnaðarhúsnæði.

Stjórnkerfi iðnferla krefjast mikillar þekkingar á þeim búnaði sem notaður er í stjórnkerfi. VERKÍS hefur á að skipa sérfræðingum á þessu og gildir það um hönnun, uppsetningu, prófanir og viðhald á þessum kerfum.

Starfsmenn Verkís hafa sérhæft sig í truflanagreiningu á rafmagni fyrir iðnfyrirtæki og eins að gera úttekt á rafmagnsnotkun iðnfyrirtægja m.t.t. orkusparnaðar.

Verkís hefur veitt ýmsum iðnfyrirtæki þjónustu, s.s. stóriðjufyrirtækjum, fyrirtækjum í matvælaiðnaði og lyfjaiðnaði ásamt ýmiskonar framleiðslufyrirtækjum.

Helstu flokkar sem Verkís veitir þjónustu á eru eftirfarandi:

  • Hönnun á rafdreifikerfum (há- og lágspennu dreifikerfi), raflögnum, lýsingakerfum, eftirlitskerfum, hússtjórnarkerfum, stjórnkerfum fyrir framleiðslu
  • Gangsetningar og prófanir á stjórnkerfum
  • Gildingar á stjórnkerfum
  • Verkeftirlit
  • Verkefnastjórnun

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica