Heildstæð þjónusta fyrir sjávarútveg
Á síðustu öld var mikil uppbygging í sjávarútvegi og tók Verkís virkan þátt í henni. Unnið var að verkefnum fyrir aðila í sjávarútvegsplássum víða um land.
Stofan annaðist hönnun og eftirlit með fiskverkunarhúsum, frystihúsum og bræðslum sem fólst m.a. í skipulagningu mannvirkja sem og aðstoð við útboð og innkaup á vélum og búnaði. Verkís sá að auki m.a. um hönnun bygginga og mannvirkja, raflagna, lýsingar og stjórnbúnaðar. Stofan hefur einnig hannað stjórnbúnað og líkön til að mæla öldurót og stýra stöðugleika skipa.
Verkís vann að auki mörg verkefni á uppgangstíma fiskeldis á Íslandi. Eftir erfitt tímabil í atvinnugreininni hefur fiskeldi náð góðri fótfestu hérlendis og í ýmsum löndum hefur það orðið að umtalsverðri atvinnugrein.
Smellið á hlekkina hér til hliðar til að fá nánari upplýsingar um þjónustu.
Smellið á myndina hér að neðan til að lesa bækling um þjónustuframboð Verkís fyrir sjávarútveg.

