Gæðamál raforku og segulsviðsmælingar
Dreifikerfi rafmagns samanstendur af þeim línum, strengjum, rofum, spennum og fleiru sem liggja á milli aðveitustöðva og neytenda. Neytendur gera ráð fyrir að framboð raforku sé mjög áreiðanlegt, en því miður eru gæði rafmagns ekki alltaf eins og vænst er og liggja ýmsar ástæður þar að baki.
Reynsla Verkís af hönnun flutnings- og dreifikerfa, iðnkerfa, samskipta-kerfa og uppsetningu rafmagns í byggingum spannar áratugi. Þessi reynsla ásamt mjög hæfu starfsfólki sem stöðugri eykur við kunnáttu sína eru grunnur þjónustu okkar varðandi gæðamál raforku og segulsviðsmælingar.
Fyrir utan líkurnar á rafmagnsleysi þá eru þættir eins og sveiflur í spennu og tíðni, harmónísk bjögun o.fl. frumskilyrði þegar kemur að gæðum rafmagns.
Þegar fjárfest er í raftækjum eins og tölvum, samskiptakerfum og tölvustýrðum stýringum í iðnaði er mikilvægt að velta fyrir sér gæðum á því rafmagni sem er í boði. Til þess að koma í veg fyrir óþarfa kostnað síðar meir er nauðsynlegt að leggja upp með réttar kröfur til tækja-búnaðar í tengslum við gæði rafmagns.
Sérþekking Verkís á mati raforkugæða og áreiðanleika, rafsegulsviðs-samhæfi (EMC) og mælitækni spannar áratugi. Verkefnalisti Verkís hefur að geyma verkefni tengd rannsóknum á samhæfi, spennugæðum og spennutruflunum auk þess sem hönnun kerfanna miðar að því að lágmarka bæði líkur á truflunum og áhrif truflana. Rannsóknir hafa verið gerðar á töluverðum fjölda dreifikerfa heimila og iðnaðar, stýrikerfa og samskiptakerfa.
Helstu þjónustuþættir
Ráðgjöf sem byggir á reynslu og aðstæðubundnum viðfangsefnum er lykillinn að árangursríku skipulagi og framkvæmd verkefna. Þjónusta okkar felur í sér alla þætti í gæðamálum raforku og segulsviðsmælingum, svo sem:
- Ráðgjöf varðandi kaupsamninga
- Ráðgjöf varðandi val á tækjabúnaði
- Ráðgjöf varðandi val á neyðar- og varaorkugjöfum
- Ráðgjöf og hönnun á kerfum fyrir jörðun og spennujöfnun
- Mælingar og mat á gæðum raforku
- Greining truflana í rafmagnskerfum
- Mat á staðbundnum aðstæðum
- Mat á uppsetningu
Nokkur lykilverkefni:
- Elkem Ísland
- Landsvirkjun
- Landsnet
- Orkuveita Reykjavíkur
- Rarik
- Míla
- Síminn
