Háspennulínur og háspennustrengir
Verkís hefur unnið fyrir Landsnet við frumathuganir og verkhönnun á háspennulínum fyrir íslensk orkufyrirtæki. Þjónustan nær til athugana á línuleiðum, flutningsgetu, turngerðum, burðarþoli, jarðskautum og fleiru.
Verkís hefur talsverða reynslu af hönnun og ráðgjöf varðandi háspennustrengi, lagða í jörð og í lofti. Þar er um að ræða strengi allt frá millispennusviði dreifikerfa og upp í 245 kV háspennustrengi fyrir orkufyrirtæki og iðnfyrirtæki. Þjónusta Verkís nær til kerfisathugana, hönnunar, gerð útboðsgagna, samninga, innkaupa, eftirlits og prófana. Þjónustan nær til allra þátta strenglagna og er þar m.a. um að ræða háspennustrengi og fylgibúnað, jarðvinnu og landmælingar.
Nokkur lykilverkefni:
- Bjarnarflagslína
- Eyvindarárlína
- Kárahnjúkavirkjun
- Fljótsdalslína 2
- Svæðisrafdreifikerfi Kárahnjúkavirkjunar,
- Hellisheiðarvirkjun
