Kerfisathuganir

Kerfisathuganir

Við undirbúning nýrra verkefna á sviði raforkukerfa er grundvallaratriði að setja upp tölvulíkan af kerfinu fyrirfram og nota það til greiningar á þeirri áraun sem einstakir hlutir kerfisins sem og kerfið í heild þarf að þola. Hið sama er að segja um greiningu á kerfum sem þegar eru í rekstri, til að mynda ef vandamál eru í rekstri þeirra eða ef til stendur að breyta þeim eða bæta við. Hægt er að líkja eftir hegðun kerfisins við eðlilegar aðstæður sem og við alvarlegustu íturaðstæður vegna bilana og utanaðkomandi áhrifa. Verkís hefur langa reynslu í slíkri greiningu og ráðgjöf sem henni tengist.  Til þessara nota á Verkís fullkominn hugbúnað og áralanga reynslu í notkun hans. Niðurstöður hafa verið notaðar sem forsendur fyrir hönnun búnaðar í stórum jafnt sem smáum verkefnum með góðum árangri.  Útreikningar sem Verkís hefur þekkingu og reynslu til að annast eru meðal annars:

 

  • Álagsflæði og álag á einstaka kerfishluta
  • Skammhlaupsafl
  • Yfirtónar og aðrar truflanir
  • Jarðskautskerfi
  • Varnarbúnaður
  • Svipulir eiginleikar („dýnamík“)

 

Útreikningum hefur verið beitt við greiningu á ýmsum kerfum, meðal annars:

  • Virkjanir – jarðskaut, rafalar, spennar, strengir, stór tæki (dælur, viftur o.s.frv.)
  • Virkjanir – svipulir eiginleikar og áhrif breytinga á vatnsflæði, tíðni, spennu o.s.frv. með tilliti til eiginleika vatnsvega, lokubúnaðar, vélasamstæðna, flutningslína og notenda, gangráða og spennustilla
  • Tengivirki og flutningskerfi – línur og strengir, rofabúnaður, spennar og launaflsvirki
  • Iðnfyrirtæki – innfæðing frá flutningskerfi, spennar, ofnar, stór tæki, yfirtónar, launaflsvirki
  • Dreifikerfi sveitarfélaga – innfæðing frá flutningskerfi, línur, strengir, spennar, stórir notendur
  • Dreifikerfi í stórum byggingum

Nokkur lykilverkefni

  •  Kárahnjúkavirkjun
  • Kröfluvirkjun
  • Nesjavallavirkjun
  • Hellisheiðarvirkjun
  • Vatnsaflsvirkjanir í Quorlotorsuaq og Sisimut á Grænlandi
  • Svæðisrafmagn Fljótsdalsheiði
  • Flutningskerfi tengt Kárahnjúkavirkjun og Hellisheiðarvirkjun
  • Járnblendiverksmiðjan Grundartanga
  • Dreifikerfi í Hveragerði og á Selfossi
  • Dreifikerfi á Húsavík
  • Dreifikerfi Landspítalans Fossvogi

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica