Tengivirki og aðveitustöðvar
Tengivirki og aðveitustöðvar
Verkís hefur unnið mikið fyrir helstu orkufyrirtæki landsins og iðnfyrirtæki við frumathuganir, hönnun, gerð útboðsgagna, samninga, innkaup, eftirlit, prófanir og gangsetningu á tengivirkjum og aðveitustöðvum ásamt úttektum og ástandsskoðunum. Reynsla fyrirtækisins nær til gaseinangraðra virkja og lofteinangraðra virkja inni og úti á spennusviði frá 33 kV upp í 220 kV og að hluta á 400 kV. Þjónustan nær til alls búnaðar í tengivirkjum ásamt byggingarvirkja og stoðkerfa þeirra.
Þar er m.a. um að ræða eftirfarandi:
- Háspennurofabúnaður
- Aflspennar
- Stjórn- og varnarbúnaður
- Hjálparbúnaður
- Steinsteypuvirki
- Stálvirki
- Jarðskautskerfi
- Lagnakerfi
- Loftræsikerfi
- Raflagnir
- Öryggisbúnaður
- Áhættumat og áhættugreining
- Ástandsmat og rekstrarþjónusta
Nokkur lykilverkefni:
- Tengivirki Fljótsdal
- Tengivirki Kolviðarhóli
- Tengivirki Teigarhorni
- Tengivirki Lagarfossi
- Tengivirki Sultartanga
