Varnarbúnaður, prófanir og gangsetning

Varnarbúnaður, prófanir og gangsetning

Varnarbúnaður raforkukerfa

Verkís hefur áratuga reynslu af vinnu við varnarbúnað og býður alla almenna þjónustu við varnarbúnað raforkukerfa hjá orkufyrirtækjum og iðnfyrirtækjum. Fyrirtækið hefur breiðan hóp starfsmanna með víðtæka þekkingu og reynslu á þessu sviði ásamt þjálfuðum mönnum í prófunum á varnarbúnaði.

Þjónusta

Starfsmenn Verkís geta veitt eftirfarandi þjónustu: 

  • Hönnunarforsendur og kerfisuppbygging
  • Efnisval, útboð og innkaup
  • Valvísi og innri samþætting kerfishluta
  • Samþætting við aðlæg kerfi annarra
  • Kerfisútreikningar til að reikna stilligildi
  • Gangsetningarprófanir með prófunartæki
  • Viðhalds- og eftirlitsprófanir með prófunartæki
  • Skýrslugerð

Verkís leggur áherslu á samvinnu við verkkaupa og býður þá aðstoð sérfræðinga og starfsmanna sem verkkaupi óskar. Verkís getur einnig haft umsjón með varnarbúnaði verkkaupa en sú þjónusta innifelur meðal annars:

  • Útreikninga
  • Stillingar
  • Viðhaldsáætlanir
  • Reglulegar prófanir
  • Endýjunarþörf   

BÚNAÐUR

Verkís á kerfisgreiningarhugbúnaðinn DigSilent Power Factory og getur tekið að sér að reikna út stilligildi varnaliða í samsettum kerfum auk þess að gera greiningu á ýmsum tilvikum sem upp kunna að koma í kerfinu.

Verkís á einnig prófunartæki frá OMICRON, sem er sérhannað fyrir prófanir á varnarbúnaði (liðavernd). Notkun prófunartækis beinist fyrst og fremst að varnarbúnaði rafala og spenna annars vegar og dreifikerfum á millispennu hins vegar.  Einnig má nota prófunartækið til prófana á mælibúnaði, ferjöldum og mælistöðvum.

Mikilvægi reglulegs viðhalds

  • Verndar starfsfólk og búnað
  • Kemur í veg fyrir ófyrirséðar útleysingar
  • Minnkar hættu á ófyrirséðum rekstrarstöðvunum
  • Tryggir virkni útleysirása

Helstu tæki

DigSilent Power Factory

Fyrir kerfisútreikninga ásamt greiningu og sannprófun stillinga á varnarbúnaði

OMICRON CMC 356

Sérhannað prófunartæki fyrir varnarbúnað. 3 fasa 0-32 A AC, 0-300 V og 1 fasa 0-64 A AC,  0-600V

Sverker 750

Prófunartæki með straumgetu upp að 250 A AC

 

PDF skjal

 

 

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Jafnlaunaúttekt PWC 2012
Framúrskarandi fyrirtæki 2011
Þetta vefsvæði byggir á Eplica