Orkuvinnsla
Aðgangur að nægri orku er einn af mikilvægustu þáttum í hverju þjóðfélagi. Á Íslandi njótum við þeirra forréttinda að búa yfir miklum endurnýjanlegum orkuauðlindum í formi jarðvarma og vatnsafls. Þessar auðlindir hafa nú að nokkru leyti verið virkjaðar, til hagsbóta fyrir þjóðfélagið.
VERKÍS er leiðandi fyrirtæki á sviði ráðgjafar og hönnunar í umhverfisvænni orkuvinnslu og hefur tekið veigamikinn þátt í þessari uppbyggingu á orkuvinnslu á Íslandi. VERKÍS hefur tekið þátt í hönnun flestra virkjana á Íslandi frá miðbiki tuttugustu aldar og er aðalhönnuður fjölda virkjana á landinu. Á það bæði við um jarðvarmavirkjanir og vatnsaflsvirkjanir og öll fagsvið verkfræðiþjónustu .
Einnig hefur VERKÍS séð um hönnun virkjana á erlendri grundu s.s. á Grænlandi og í El Salvador.
