Jarðvarmavirkjanir
Hlutur jarðvarmavirkjana í raforkuframleiðslu okkar Íslendinga hefur aukist mjög hin síðari ár. Nú er svo komið að upppsett afl jarðvarmavirkjana er 575 MW af þeim 2450 MW sem uppsett eru í landinu öllu. Hlutur jarðvarmans er því 23,4 % en var 13,7% fyrir fimm árum síðan. Hlutur jarðvarmans í raforkuvinnslunni er nú talinn um 30% og er ekki loku fyrir það skotið að hlutur jarðvarmans í raforkubúskapnum muni enn aukast í náinni framtíð.
Flestar þjóðir heims, sem einhverja möguleika hafa á því að nýta jarðhita til orkuframleiðslu munu gera það í enn ríkara mæli en hingað til á komandi árum. Þetta á ekki síst við þar sem stefnumörkun ríkja miðar að því að auka hlut endurnýjanlegra og umhverfisvænna orkugjafa í orkubúskap sínum. Ef rétt er að málum staðið bera slíkar virkjanir höfuð og herðar yfir aðra virkjunarkosti með tilliti til umhverfisáhrifa.
Verkís hefur yfir að ráða yfirgripsmikilli þekkingu á sviði jarðvarmavirkjana og hefur komið að undirbúningi, hönnun og framkvæmd nær allar jarðvarmavirkjana í landinu. Þá hafa sérfræðingar fyrirtækisins verið eftirsóttir á erlendri grund vegna sérfræði þekkingar sinnar og munu á komandi árum sækja fram á þeim vettvangi í ríkari mæli en hingað til.
Verkís getur boðið viðskiptavinum sínum heildar lausn við áætlanagerð, hönnun og framkvæmdaeftirlit og nær þjónustan til hönnunar á öllum vél- og rafbúnaði auk hönnunar mannvirkja sem þarf til slíkra virkjana.
