Orkuvinnsla

Orkuvinnsla

Aðgangur að nægri orku er einn af mikilvægustu þáttum í hverju þjóðfélagi.  Á Íslandi njótum við þeirra forréttinda að búa yfir miklum endurnýjanlegum orkuauðlindum í formi jarðvarma og vatnsafls.  Þessar auðlindir hafa nú að nokkru leyti verið virkjaðar, til hagsbóta fyrir þjóðfélagið.

VERKÍS er leiðandi fyrirtæki á sviði ráðgjafar og hönnunar í umhverfisvænni orkuvinnslu og hefur tekið veigamikinn þátt í þessari uppbyggingu á orkuvinnslu á Íslandi. VERKÍS hefur tekið þátt í hönnun flestra virkjana á Íslandi frá miðbiki tuttugustu aldar og er aðalhönnuður fjölda virkjana á landinu. Á það bæði við um jarðvarmavirkjanir og vatnsaflsvirkjanir og öll fagsvið verkfræðiþjónustu .

Einnig hefur VERKÍS séð um hönnun virkjana á erlendri grundu s.s. á Grænlandi og í El Salvador.



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica