Önnur orkuvinnsla

Önnur orkuvinnsla

Verkís býður upp á þjónustu vegna vinnslu ýmissar orku, s.s. vindorku, sjávarföllum, gasþrýstifalli, lífrænu eldsneyti og lágvarma í tvívökvavirkjunum. Reynsla fyrirtækisins í öðrum gerðum orkuvinnslu nýtist vel í þessum verkefnum.  Verkís mun fylgist vel með rannsóknum og þróun nýrra orkugjafa og orkubera og tekur þátt í rannsóknarverkefnum eins og kostur er. Verkís býður ráðgjöf og hönnun vegna rannsókna, hagkvæmniathugana, hönnunar, innkaupa, eftirlits og prófana. Sé þörf á sérhæfðri þekkingu sem Verkís hefur ekki yfir að ráða munum við leita til erlendra samstarfsaðila.

Þjónustan nær til ýmissa þátta viðkomandi orkuvinnslu og er þar m.a. um að ræða eftirfarandi:

  • Byggingarvirki
  • Vélbúnað
  • Rafala
  • Rofabúnað
  • Kælikerfi
  • Stjórn- og varnarbúnað
  • Hjálparbúnað

Lykilverkefni:

  • Sjávarfallavirkjun í Breiðafirði-Rannsóknarverkefni
  • Blue-Ng forhönnun og útboð


Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica