Vararafstöðvar
Vararafstöðvar
Verkís hefur unnið að ráðgjöf og hönnun vegna fjölda vararafstöðva fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir s.s. sjúkrahús, fjarskiptafyrirtæki, virkjanir, iðjuver og verslanamiðstöðvar. Um er að ræða stórar og smáar stöðvar, frá nokkrum kW til nokkurra MW. Yfirleitt er um miklar kröfur að ræða hvað varðar val búnaðar miðað við aðstæður og álagsgerð, áreiðanleika og öryggi. Þjónustan innifelur alla ráðgjöf og hönnun vegna þarfagreiningar, hönnunar, gerðar útboðsgagna, samninga, innkaupa, eftirlits, prófana og gangsetningar á vararafstöðvum.
Þjónustan nær til allra þátta vararafstöðva og er þar m.a. um að ræða eftirfarandi:
- Byggingarvirki
- Díselvélar
- Rafalar
- Eldsneytiskerfi
- Kælikerfi
- Rafgeymar
- Stjórn- og varnarbúnaður
- Hjálparbúnaður
- Öryggisbúnaður
Lykilverk:
- Smáralind,
- Míla Reykjavík
- LSH Fossvogi
- Elkem Ísland.
