Vatnsorka

Vatnsaflsvirkjanir

Verkís er í fararbroddi á Íslandi hvað varðar reynslu í ráðgjöf og hönnun varðandi vatnsaflsvirkjanir og hefur unnið mikið fyrir stærstu orkufyrirtæki landsins en einnig fyrir smærri fyrirtæki og í útlöndum. Reynslan nær allt aftur til upphafsára Sigurðar Thoroddsen sem verkfræðings á fjórða áratugi síðustu aldar. Verkís hefur unnið að stórum sem smáum virkjunum, allt frá einföldum virkjunum minni en eitt MW og upp í 690 MW Kárahnjúkavirkjun en hún er tæknilega flókin og fullkomin virkjun sem er vitnað til víða um heim.

Þjónustan innifelur alla ráðgjöf og hönnun vegna frumathugana, hagkvæmniathugana, hönnunar, gerðar útboðsgagna, samninga, innkaupa, eftirlits, prófana og gangsetningar á virkjunum.  Verkís hefur auk þess víðtæka reynslu af úttektum og ástandsmati á eldri virkjunum ásamt ráðgjöf og hönnun við endurnýjun og uppfærslu virkjana.

Þjónustan nær til allra þátta vatnsaflvirkjana og er þar m.a. um að ræða eftirfarandi:

  • Umhverfismat og skipulag
  • Vatnafræði og straumfræði
  • Jarðfræði og jarðtækni
  • Áætlanagerð
  • Jarðskjálftafræði
  • Reiknilíkön
  • Stíflur, yfirföll og botnrásir
  • Jarðgöng og veituskurðir
  • Stöðvarhús
  • Lokubúnaður
  • Vatnsvélar
  • Rafalar
  • Aflspennar
  • Stjórn- og varnarbúnaður
  • Hjálparbúnaður
  • Öryggisbúnaður
  • Áhættumat og áhættugreining
  • Ástandsmat og rekstrarþjónusta

Lykilverkefni:



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica