Öryggismál
Umhverfi-og-oryggi

Öryggismál

Verkís býður viðskiptavinum sínum víðtæka ráðgjöf í öryggismálum varðandi alla þætti almenns rekstrarumhverfis.

Um er að ræða markvissa og skipulega greiningu öryggisþátta, sem unnin er í nánu samstarfi við viðskiptavini og sniðin að óskum og þörfum þeirra.

Einnig er boðin ráðgjöf við heildræna stjórnun og samþættingu öryggis-, umhverfis- og gæðamála.

 

Markmiðin eru að koma í veg fyrir áföll og draga úr afleiðingum og áhættu áfalla með því að:

  • Móta stefnu og setja markmið.
  • Gera úttektir, greina hættur og meta áhættu.
  • Skilgreina ábyrgð og verkaskiptingu.
  • Ákveða forvarnir og viðbúnað.
  • Skipuleggja og þjálfa viðbrögð.
  • Skipuleggja samfelldni í rekstri og enduruppbyggingu eftir áfall.

 

Verkís hefur viðurkenningu Vinnueftirlitsins sem ráðgjafa- og þjónustuaðili á sviði öryggis- og heilbrigðis á vinnustöðum.

 

 

 

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica