Brunavarnir
Verkís hefur á að skipa sérfræðingum í brunavörnum og býður sveitarfélögum ráðgjöf á sviði brunavarna.
Í lögum nr. 75/2000 um brunavarnir er sveitarfélögum gert skylt að útbúa brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið sín. Brunavarnaáætlun skal innihalda lýsingu á stöðu brunavarna í sveitarfélaginu og þeim úrbótum sem fyrirhugaðar eru.
Vinna við gerð brunavarnaáætlunar felst í upplýsingaöflun, mati og skýrslugerð um m.a. búnað slökkviliðs, eldvarnaeftirlit, þjónustusvæði slökkviliðs, þjónustustig, menntun slökkviliðsmanna, samningum við önnur sveitarfélög og kortagerð.
Ferli verksins er eftirfarandi:
- Gert er stöðumat, haldinn stöðufundur með fulltrúum sveitarfélagsins og slökkviliðs þar sem fram koma helstu upplýsingar um stöðu mála.
- Í kjölfar stöðumats er gerð kostnaðar- og tímaáætlun fyrir verkið.
- Síðan er aflað þeirra upplýsinga sem á vantar, skýrsla skrifuð og henni skilað til sveitarstjórnar til samþykktar.
- Eftir samþykkt sveitarstjórnar er skýrslu skilað til Brunamálastofnunar til samþykktar.
Aðra þjónustu varðandi brunavarnir er að finna hér.
