Brunavarnir

Brunavarnir

Verkís hefur á að skipa sérfræðingum í brunavörnum og býður sveitarfélögum ráðgjöf á sviði brunavarna.

Í lögum nr. 75/2000 um brunavarnir er sveitarfélögum gert skylt að útbúa brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið sín. Brunavarnaáætlun skal innihalda lýsingu á stöðu brunavarna í sveitarfélaginu og þeim úrbótum sem fyrirhugaðar eru.

Vinna við gerð brunavarnaáætlunar felst í upplýsingaöflun, mati og skýrslugerð um m.a. búnað slökkviliðs, eldvarnaeftirlit, þjónustusvæði slökkviliðs, þjónustustig, menntun slökkviliðsmanna, samningum við önnur sveitarfélög og kortagerð.

Ferli verksins er eftirfarandi:

  • Gert er stöðumat, haldinn stöðufundur með fulltrúum sveitarfélagsins og slökkviliðs þar sem fram koma helstu upplýsingar um stöðu mála.
  • Í kjölfar stöðumats er gerð kostnaðar- og tímaáætlun fyrir verkið.
  • Síðan er aflað þeirra upplýsinga sem á vantar, skýrsla skrifuð og henni skilað til sveitarstjórnar til samþykktar.
  • Eftir samþykkt sveitarstjórnar er skýrslu skilað til Brunamálastofnunar til samþykktar.

 

Aðra þjónustu varðandi brunavarnir er að finna hér.



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica