Áhættugreiningar og áhættumat

Áhættugreiningar og áhættumat

Verkís býður viðskiptavinum sínum gerð áhættumats vegna mannvirkja, framkvæmda, rekstrar eða starfsemi.

Auknar kröfur til öryggis geta falið í sér nauðsyn þess að gert sé áhættumat vegna nýframkvæmda, rekstrar eða endurbóta.

Hættugreining og áhættumat felur í sér:

  • Greining á því hvaða hættutilvik ógna fyrirtækinu eða verkefninu og hver séu mörk ásættanlegrar áhættu. Tilvikin geta m.a. verið náttúruhamfarir, stórfelldar bilanir, slys og óhöpp eða skemmdarverk.
  • Líkur þessara tilvika eru metnar og einnig alvarleiki þeirra afleiðinga sem þau kunna að hafa í för með sér.
  • Áhrif á fólk, umhverfi, búnað og framleiðslu eru skoðuð með tilliti til alvarleika afleiðinga.
  • Áhættan er túlkuð sem samþætting á líkum og alvarleika afleiðinga.
  • Í niðurstöðum eru kynntar tillögur til úrbóta fari áhætta yfir ásættanleg mörk.

Beitt er huglægum og tölulegum aðferðum eftir því sem hentar hverju verkefni. Nefna má aðferðir eins og HAZOP, FMEA, bilanatrés- og atburðatrésgreiningar.

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica