Öryggis-og rekstrarhandbækur mannvirkja

Öryggis- og rekstrarhandbækur mannvirkja

Eftir því sem mannvirki verða flóknari og stærri aukast kröfur til  umsjónarmanna og öryggisvarða um það að halda yfirsýn yfir alla þá þætti og öll þau tæknikerfi mannvirkisins sem þeir eiga að þjónusta.

Verkís býður viðskiptavinum sínum þjónustu við gerð öryggis- og rekstrarhandbóka umsjónarmanna og öryggisvarða mannvirkja.

Handbækur þessar innihalda lýsingu á:

  • Mannvirkinu.
  • Tæknikerfum þess, viðhaldi og eftirliti.
  • Verksviði umsjónarmanns í daglegu starfi og á vöktum.
  • Helstu neyðarviðbrögðum sem nauðsynleg kunna að vera.
  • Rýmingaráætlun mannvirkis.
  • Grunnteikningu með staðsetningu búnaðar.

Slíkar handbækur innihalda yfirlit yfir alla þá þætti sem umsjónarmaður sinnir auk upplýsinga um alla þjónustuaðila kerfa.

Handbækurnar nýtast vel við dagleg störf auk þess sem þær veita nauðsynlegar upplýsingar við menntun og þjálfun nýrra starfsmanna eða vegna afleysinga.

Í tengslum við handbókargerðina er hvatt til námskeiða í viðbrögðum svo sem skyndihjálp, brunavörnum og viðbrögðum við árásum og hótunum. Einnig býður Verkís upp á að halda rýmingaræfingar og kynningar á handbókunum fyrir starfsmenn.

Handbækurnar eru afhentar á pappírs- eða rafrænu formi. Veflausnir eru einnig fyrir hendi.

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica