Vinnuvernd - Áhættumat starfa
Mat á vinnuumhverfi, öryggi og vellíðan starfsmanna á vinnustað, endurskoðun og uppfærsla forvarna. Atvinnurekendum er skylt að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað og fylgja henni eftir. Áætlunin skal meðal annars fela í sér mat á áhættu og forvarnir.
Verkís býður uppá ráðgjöf um vinnuvernd og gerð áhættumats fyrir mismunandi vinnustaði eins og matvælafyrirtæki, skrifstofur, framleiðslufyrirtæki, skóla, leikskóla, heilbrigðisstofnanir, byggingariðnað, flutningafyrirtæki, veitufyrirtæki.
Verkís hefur viðurkenningu Vinnueftirlitsins sem ráðgjafa- og þjónustuaðili á sviði öryggis- og heilbrigðis á vinnustöðum.
Í vinnuverndarmálum er Verkís er í samstarfi við Rannsóknarþjónustuna Sýni ehf, Forvarnir ehf og Magnús Ólafsson, sjúkraþjálfara.
