Þjónusta

Veg- og gatnahönnun

Verkís veitir fjölþætta þjónustu og ráðgjöf á sviði umferðarmannvirkja, meðal annars við undirbúning og hönnun vega, gönguleiða, brúa og undirganga.

Við hönnun samgöngukerfa er mikilvægt að lögð sé áhersla á öryggi og þægindi mýkri ferðamáta til jafns við akandi vegfarendur.

Við tölum af reynslu

Verkís hefur mikla reynslu af hönnun brauta, stíga og þverana fyrir gangandi vegfarendur, umferð hjólandi fólks og reiðmanna.

Hönnun götulýsingar er einnig mikilvægur þáttur í hönnun nýframkvæmda og eins þegar gera þarf endurbætur á lýsingu eldri gatna. Umferðarmerkingar sinna lögboðnu hlutverki við umferðarstýringu og er vönduð staðsetning þeirra mikilvæg til að lágmarka slysahættu en einnig má nota umferðarmerki til að bæta umferðarmenningu með markvissri notkun þeirra þar sem það á við.

Verkís hefur áratuga reynslu af hönnun gatna og vegamóta, meðal annars fyrir Vegagerðina og sveitarfélög, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Slík verkefni hafa verið af öllum stærðargráðum, allt frá hönnun stakra vegamóta til heilla gatnakerfa ásamt holræsum og öðrum veitulögnum.

Frá árinu 2010 hefur Verkís hannað vegi, götur, göngu- og hjólreiðastíga og aðrar samgöngur í Noregi, aðallega fyrir norsku Vegagerðina, Statens vegvesen, en einnig fyrir sveitarfélög. Við getum því tekið að okkur breiðan skala af verkum og fundið bestu lausnina hverju sinni.

Við vitum að það skiptir öllu máli að öryggi og þægindi allra í umferðinni séu tryggð með hönnun samgöngukerfa.

Þjónusta

  • Hönnun vega, gatna og umferðarmannvirkja
  • Göngu-, hjóla- og reiðleiðir
  • Umferðamerkingar og gatnalýsing
  • Mótvægisaðgerðir vegna t.d. hávaða eða hraða
  • Rekstur, viðhald og framkvæmdaeftirlit
  • Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlun
  • Þjónustulýsingar og viðhaldsáætlun

Verkefni

  • Höfðinn
  • Tvöföldun Reykjanesbrautar til Keflavíkur
  • Tvöföldun Reykjanesbrautar frá Fífuhvammsvegi að Kaplakrika
  • Mislæg gatnamót við Leirvogstungu, Mosfellsbæ
  • Buamyr-Grimstveit, Noregi
  • Hjólastígur meðfram Sæbraut
  • Hjólastígur – Suður Mjódd

Tengiliðir

Grétar Páll Jónsson
Byggingarverkfræðingur / Viðskiptastjóri
Svið: Samgöngur og umhverfi
gpj@verkis.is

Guðmundur Jónsson (V)
Byggingarverkfræðingur / Hópstjóri
Svið: Samgöngur og umhverfi
gj@verkis.is