Aðgerðir til að auka umferðaröryggi

Gönguleiðir með augum barnanna

Gönguleiðir með augum barnanna

Mikilvægt að kortleggja þá staði sem börn sækja mest s.s. skóla, og íþróttasvæði, verslanir og leiksvæði, og leitast við að tengja þessa staði heimilunum með skýru og samfelldu stíganeti þar sem gatnaþveranir eru öruggar. Sérstaklega er mikilvægt að vel sé gengið frá snúningsstæðum við skóla þannig að auðvelt sé að stoppa og hleypa barni út úr bíl, án þess að stofna því eða öðrum í hættu, en helsta hættan þar stafar einmitt oft af umferð vegna barna sem verið er að aka í skólann. Gönguleiðir að og frá slíkum snúningsstæðum þurfa að tengjast skólanum með öruggum göngustíg. Einnig þarf að leggja áherslu á að vel sé gengið frá gönguleiðum í nágrenni bílastæða, en þar eru börn oft í mikilli hættu vegna þess hversu lágvaxin þau eru og sjást þ.a.l. illa, þegar verið er að bakka bílum.



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica