Áhrifa- og arðsemismat
Almennt má flokka þau samfélagslegu áhrif sem vegaframkvæmdir hafa í för með sér í 4 flokka:
- Áhrif á umhverfi
- Áhrif á náttúruauðlindir
- Umferðarhagræði
- Svæðisbundin áhrif
Verkís sinnir þjónustu við alla þætti áhrifa og arðsemisreikninga.
Áhrifamat vegaframkvæmda
Við áhrifamat vegaframkvæmda eru metin þau samfélagslegu áhrif þær geta haft í för með sér og ekki eru verðlögð í arðsemismati. Þessum áhrifum má skipta í 4 þætti: umhverfi, náttúruauðlindir, umferðarhagræði og svæðisbundin áhrif. Verkís hefur meðal annars unnið að verkefnum á þessu sviði vegna Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð, legu þjóðvegar 1 um Borgarnes, Hallsvegar í Reykjavík og vegna Sundabrautar.
Arðsemismat vegaframkvæmda
Við mat á arðsemi umferðarmannvirkja er borinn saman umferðarkostnaður miðað við að ráðist sé í framkvæmd og þann umferðarkostnað sem verður ef ekki yrði af framkvæmdinni. Dæmi um þætti sem teknir eru til skoðunar eru stofn- og viðhaldskostnaður umferðarmannvirkja, kostnaður vegna ekinnar vegalengdar, umferðartími ásamt kostnaði vegna umferðaróhappa.
Við mat á kostnaði vegna ekinnar vegalengdar, umferðartíma og umferðaróhappa er unnin umferðarspá. Við útreikningana er notað forritið Trips og unnið úr umferðartalningum eða þeim umferðarlíkönum sem fyrir liggja.
Kostnaður vegna hugsanlegra mótvægisaðgerða sem þarf til að uppfylla lögbundin mörk um hljóðvist og loftmengum eru aftur á móti innifalin í tölum um stofnkostnað mannvirkisins.
