Vistvegir
Vistvegir
Verkís vann árið 2004 leiðbeiningarrit um hönnun sk. vistvega þar sem þjóðvegir fara um þéttbýli. Um er að ræða aðferð sem notuð hefur verið til að auka umferðaröryggi og minnka umhverfisáhrif umferðar þar sem þjóðvegir liggja í gegnum byggð. Aðgerðirnar miða að því að lækka umferðarhraða, fækka umferðaróhöppum, bæta hljóðvist, auðvelda gangandi vegfarendum að komast yfir veginn, minnka ótta óvarinna vegfarenda (gangandi/hjólandi) og fegra umhverfi vegarins.
Hér má sjá skýrsluna á heimasíðu Vegagerðarinnar.
