Umhverfi
Verkís veitir alhliða þjónustu og ráðgjöf á sviði náttúrufræði og umhverfismála. Stærstu verkefnin eru mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana auk sérfræðirannsókna. Þar er um að ræða aðstoð við alla þætti matsins, gerð matsáætlunar, ritstjórn og ritun matsskýrslu auk rannsókna og gerð sérfræðiskýrsla.
Rannsóknaþættir eru fjölbreyttir, allt frá athugunum á rennslisháttum vatnsfalla, aurburði, setmyndun og rofi, til athugana á hljóð- og loftmengun, jarðfræði og fuglatalninga. Einnig er veitt aðstoð við starfsleyfisumsóknir og umsókn um önnur leyfi sem þörf er á.
Við tökum að okkur skipulagningu og framkvæmd mótvægisaðgerða auk þess að aðstoða sveitarfélög og framkvæmdaaðila við eftirfylgni umhverfismats.
Við sinnum fjölmörgum verkefnum öðrum verkefnum á sviði umhverfismála. Má þar nefna umhverfisstjórnun í fyrirtækjum og sveitarfélögum, t.d. veitum við ráðgjöf við setningu stefnu um umhverfismál og eftirfylgni hennar, eða við uppbyggingu á vottuðum umhverfisstjórnunarkerfum eins og ISO 14001 eða öðrum. Einnig veitum við aðstoð við gerð græns bókhalds og ársskýrsla um umhverfismál. Þá getum við séð um fræðslu um umhverfismál fyrir fyrirtæki og sveitarfélög.
