Eftirfylgni við mat á umhverfisáhrifum
Aukin ábyrgð sveitafélaga
Við breytta málsmeðferð framkvæmda sem falla undir lögin um mat á umhverfisáhrifum árið 2005 voru auknar skyldur lagðar á herðar sveitarfélaga.
Sveitarfélög hafa ýmsum hlutverkum að gegna í matsferlinu. Þau eru:
- Umsagnaraðilar
- Leyfisveitendur
- Eftirlitsaðilar
Leyfisveitendur þurfa við útgáfu leyfis að kanna hvort framkvæmdin sé sú sama og lýst er í matsskýrslu og taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum hennar. Víki leyfisveitandi frá niðurstöðum í áliti stofnunarinnar þarf hann að færa rök fyrir því. Þá þarf leyfisveitandi líka að taka afstöðu til þess hvort framkvæmdin sé í samræmi við skipulagsáætlanir sveitarfélagsins.
Verkís getur aðstoðað
Við tökum að okkur að aðstoða sveitarfélög við eftirfylgni mats á umhverfisáhrifum.
Við getum séð um skipulagningu og umsjón með vöktun umhverfis vegna áhrifa frá framkvæmdum og rekstri. Það er t.d. vöktun á lífríki, hljóðstigi, loft- og vatnsgæðum, vatnafari og/eða samfélagslegum áhrifum. Einnig veitum við ráðgjöf við val og útfærslu á mótvægisaðgerðum, framkvæmd þeirra og eftirfylgni.
Við veitum ráðgjöf við leyfisveitingar. Í þeirri ráðgjöf getur falist yfirlestur á matsskýrslu, samræming leyfis við álit Skipulagsstofnunar og skipulag sveitarfélagsins og tillögur að skilyrðum eða mótvægisaðgerðum.
Við aðstoðum sveitarfélög við að hafa eftirlit með framkvæmdinni og tryggja að öllum skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem sett eru fram í mati á umhverfisáhrifum og framkvæmdaleyfi sé fylgt eftir.
Við veitum sveitarfélögum aðstoð við yfirlestur og túlkun á sérfræðiskýrslum og öðrum gögnum sem lögð eru fram, t.d. við mat á umhverfisáhrifum, gerð skipulagsáætlana eða umsókna um framkvæmda- og byggingarleyfi.
Þjónusta Verkís
- Vöktun
- Mælingar á hljóðstigi
- Mótvægisaðgerðir vegna framkvæmda
- Túlkun á sérfræðiskýrslum og áætlunum
- Eftirfylgni framkvæmda
- Aðstoð við umsagnir
- Aðstoð við leyfisveitingar
