Vöktun og mótvægisaðgerðir

Vöktun og mótvægisaðgerðir

Sérfræðingar Verkís taka að sér að sjá um skipulagningu og umsjón með vöktun umhverfis vegna áhrifa framkvæmda og rekstrar.  Er þar um að ræða vöktun á dýralífi, gróðri, vatnafari, loftgæðum, hljóðstigi, og fleiru.  Ennfremur aðstoðum við með túlkun á niðurstöðum og ritun greinargerðar og kynningu á niðurstöðum. 

Verkís veitir einnig ráðgjöf við framkvæmd mótvægisaðgerða, val á aðgerð og útfærslu hennar, sem oft er krafist í áliti Skipulagsstofnunar við mat á umhverfisáhrifum.  Dæmi um slíkar aðgerðir er endurheimt votlendis eða gerð hljóðmana.



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica