Umhverfisstjórnun

Umhverfisstjórnun

Verkís getur aðstoða fyrirtæki og sveitarfélög við undirbúning og mótun umhverfisstefnu og framfylgni hennar, t.d. vistvæn innkaup, sorpflokkun og endurvinnslu. 

Við höfum á að skipa viðurkenndum ráðgjöfum til uppbyggingar á umhverfisstjórnunarkerfum skv. ISO 14001 staðlinum.  Við aðstoðum einnig við uppsetningu á öðrum kerfum.  

Við veitum fyrirtækjum ráðgjöf við útfærslu og gerð græns bókhalds og ársskýrslu um umhverfismál.

Við getum séð um fræðslu um umhverfismál fyrir fyrirtæki og sveitarfélög, t.d. gerð fræðslu og kynningarefnis um náttúru og framkvæmdir.  Einnig tökum við að okkur kynningu á umhverfismálum og -stefnu fyrirtækja og sveitarfélaga.

Helstu verkefni á þessu sviði eru:

  •  Umhverfisstefna
  •  Umhverfisstjórnunarkerfi, t.d. ISO 14001, EMAS
  •  Grænt bókhald
  •  Fræðsluskilti
  •  Fræðsla og kynningarmál


Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica