Snjóflóð

Snjóflóðavarnir

 

Verkís hefur sinnt verkefnum og ráðgjöf tengdri snjóflóðamálum samfellt í um tvo áratugi, eða frá árinu 1990. Verkefni stofunnar hafa verið fjölbreytt og náð yfir hættumat vegna snjóflóða, frumhönnun og verkhönnun snjóflóða-, aurflóða-, og grjóthrunsvarna auk framkvæmdaeftirlits. Verkís hefur komið að vinnu við ofanflóðavarnir á Ísafirði, í Súðavík, í Bolungarvík, á Hnífsdal, Flateyri, Bíldudal, Patreksfirði, í Neskaupstað, Seyðisfirði, í Ólafsvík, á Kjalarnesi, og í Eyjafjarðarsveit.

 Straumhvörf urðu í snjóflóðamálum hér á landi í kjölfar mannskæðu snjóflóðanna á Súðavík og Flateyri árið 1995. Lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum voru endurskoðuð árið 1997. Í tengslum við þá lagabreytingu var öllu skipulagi ofanflóðamála breytt og sá málaflokkur færður undir umhverfisráðuneytið. Í kjölfar þeirrar endurskipulagningar hófst umfangsmikil vinna við að fylgja lögunum eftir. Hún fólst í mati á ofanflóðaáhættu á þéttbýlissvæðum á Íslandi og uppbyggingu varna til þess að tryggja ásættanlegt öryggi fólks á hættusvæðum. Sú vinna og þær framkvæmdir sem hún hefur kallað á eru fjármagnaðar að stærstum hluta úr sérstökum sjóði, Ofanflóðasjóði. Megin hlutverk Ofanflóðasjóðs er að standa straum af kostnaði við varnarframkvæmdir og aðrar fyrirbyggjandi aðgerðir, sem tryggja eiga öryggi íbúa á snjóflóðahættusvæðum.

Verkís hefur á að skipa sérfræðingum í snjóflóðaeðlisfræði, straumverkfræði og jarðfræði. Sérfræðingar verkfræðistofunnar hafa ennfremur unnið að úrlausn sérhæfðra verkefna með erlendum sérfræðingum frá Noregi, Frakklandi, Sviss og Austurríki auk þess að taka þátt í mótun á reglum um hættumat hér á landi og alþjóðlegum viðmiðunarreglum um hönnun snjóflóðavarnargarða samhliða frumrannsóknum á því sviði.

 Þjónustu Verkís vegna vinnu við varnir gegn ofanflóðum má gróflega skipta í:

  • Frumathugunarvinnu, þar sem mat er lagt á möguleika á að verjast ofanflóðum á skilgreindum hættusvæðum. Einfaldri hönnun varna er stillt upp og kostnaður borinn saman við verðmæti varinna eigna.
  • Verkhönnun sem byggir á frumathugun. Þar eru varnarmannvirki útfærð tæknilega og jarðtæknileg hönnun unnin. Ýtarlegt kostnaðarmat er sett fram og útboðsgögn vegna framkvæmda útbúin.
  • Eftirlit með framkvæmdum við ofanflóðavarnir, þar sem fylgst er með því að tæknileg atriði sem snúa að virkni varna séu uppfyllt auk hefðbundins eftirlits.
  • Almenna eftirfylgni með virkni og endingu varna.

 

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica