Vatna- og straumfræði
Vatna- og straumfræði
Innan Verkís er reynsla og þekking við gerð og notkun ýmissa vatnafræðilíkana, s.s. sjávarfallalíkana, vatnsborðslíkana og flóðalíkana. Verkís getur séð um mælingar á grunnvatni og gerð grunnvatnslíkana vegna ýmissa framkvæmda. Verkís hefur einnig reiknilíkan til að meta dreifingu loftmengunar frá umferð og öðrum uppsprettum loftmengunar, sem og dreifingu mengunar í sjó.
Vatnafarslíkön
- Sjávarfallalíkan
- Vatnsborðslíkön
- Flóðalíkön
- Grunnvatnslíkön og - mælingar
- Dreifing mengunar í sjó
Loftdreifingarlíkan
- Dreifing mengunar í lofti
